Nýi liðsfélaginn þinnsvarar alltaf.

Anna er liðsfélagi sem talar fullkomna íslensku, svarar fyrirspurnum viðskiptavina þinna og bókar tíma, líka á ensku og fleiri tungumálum. Alltaf á vakt. Alltaf í leiknum.

Anna fer í loftið um leið og þú skráir þig. Engar kortaupplýsingar. Reikningur berst með 14 daga greiðslufresti.

Frumkvöðlasamstarf: 3 mánuðir án endurgjalds. Sérkjör eru síðan samin við hvert fyrirtæki.

Anna vinnur alls staðar: í hliðarglugga, í spjallglugga, innfelld á síðunni og í símanum.

Vandað íslenskt málSvör allan sólarhringinnÞú getur fylgst með öllu
TengistGoogle dagatalBókunShopifyHubSpotSlackZapierTelegramOg fleiri

Dæmdu Önnu út frá því sem hún gerir.

Anna finnur svörin í gögnum fyrirtækisins, klárar verkefnið þegar hún getur og vísar málinu áfram þegar manneskja á að taka við. Dæmin hér að neðan eru óbreytt, orð fyrir orð, úr prufuumhverfinu okkar.

1Skilur.

Ég þarf fjögur ný heilsársdekk undir Yarisinn, hvað kostar það?

A

Anna

Raunverulegt svar

Það fer aðeins eftir dekkjastærðinni sem passar á Yarisinn þinn, en Yaris er oftast á 15 eða 16 tommu felgum. Verðin okkar á algengum stærðum eru:

195/65 R15: 28.500 kr. á dekk205/55 R16: 31.500 kr. á dekk

Ef þú lítur á hlið dekksins ættirðu að sjá stærðina, eitthvað í líkingu við „195/65 R15“. Getur þú kannað hvaða stærð er á bílnum þínum svo ég geti gefið þér nákvæmt verð?

Athugaðu líka að ef þú vilt fá dekkin sett undir hjá okkur bætast við dekkjaskipti á 4.500 kr. á dekk, samtals 18.000 kr. fyrir öll fjögur.

3 · Veit hvenær á að hætta. Kvörtun fer beint til manneskju, með samantekt á málinu.

Svör Önnu eru óbreytt úr prufuumhverfinu okkar. Nöfn og samskiptaupplýsingar í dæmunum eru tilbúin.

Prófaðu þína eigin spurningu.

Frá æfingum á völlinn.

  1. Æfingatími.

    Þú segir Önnu frá fyrirtækinu þínu. Þjónusta, opnunartímar, verðskrá, algengar spurningar. Allt sem Anna þarf til að spila sitt besta.

  2. Anna er komin á völlinn.

    Ein lína af kóða á vefsíðuna þína og Anna er tilbúin. Engin flókin uppsetning, engin tækniþekking nauðsynleg.

  3. Anna annar þessu.

    Hún svarar fyrirspurnum, bókar tíma og sendir málið til þín þegar viðskiptavinur þarf mannlega aðstoð. Þú færð tilkynningu með samantekt þannig að þú missir aldrei af neinu.

Þetta kann Anna.

  • Íslenska sem viðskiptavinir treysta.

    Anna skrifar íslensku með réttum beygingum, eðlilegu orðalagi og tóni sem hæfir fyrirtækinu þínu.

  • Svarar á máli viðskiptavinarins.

    Anna greinir tungumálið í hverri fyrirspurn og svarar á því. Anna er sterkust í íslensku og ensku en svarar líka á pólsku, þýsku, spænsku og fleiri tungumálum. Ekkert tungumál er læst á bak við dýrari áskrift.

  • Alltaf í leiknum.

    Klukkan tvö á nóttu. Á laugardögum. Á þjóðhátíðardaginn. Anna svarar þegar enginn annar gerir það. Fyrirspurnin sem berst klukkan 23:47 verður að bókun klukkan 23:48.

  • Bókar tíma beint.

    Anna tengist Google dagatalinu þínu og bókar tíma í samtali við viðskiptavininn. Enginn milliliður, engin bið.

  • Veit hvenær á að gefa.

    Anna er liðsmaður. Þegar málið krefst mannlegrar aðstoðar, gefur hún boltann til rétts aðila í teyminu og sendir þér tilkynningu með samantekt á samtalinu. Góður liðsfélagi veit hvenær á að gefa.

  • Æfingin skapar meistarann.

    Settu inn verðskrár, matseðla, spurningalista, reglur. Anna les skjölin, man efnið og notar það til að svara rétt. Nýtt efni? Anna er komin með nýju útgáfuna á nokkrum mínútum.

  • Klæðist liðsbúningnum þínum.

    Anna aðlagar litina, ávarpið og tóninn að þínu vörumerki. Hún situr á þinni vefsíðu og passar inn eins og hún hafi alltaf verið þar.

  • Spilar eftir reglum.

    Anna uppfyllir kröfur persónuverndarreglugerðar (GDPR) frá fyrsta degi. Gagnavinnsla er gagnsæ, gögn viðskiptavina eru aldrei notuð til að þjálfa gervigreindarlíkön og þú getur óskað eftir að þeim sé eytt hvenær sem er. Persónuvernd sem þú getur treyst.

Byggð fyrir Ísland

Spurningarnar sem ferðamenn spyrja.

Er vegurinn í Landmannalaugar opinn? Sjást norðurljós í kvöld? Hvernig verður veðrið á Snæfellsnesi á laugardaginn? Anna sækir svörin beint frá Vegagerðinni og Veðurstofunni í rauntíma og svarar á því máli sem gesturinn spurði á.

Rauntímagögn · Vegagerðin · Veðurstofan

Is the road to Landmannalaugar open this weekend?
According to the Icelandic Road Administration this morning, F208 from the north is open for 4x4 vehicles. Saturday's forecast for the highlands is dry with light wind. Want me to check the aurora forecast for your evening too?

Sýnidæmi

Frá 9.900 kr. á mánuði.

Eitt fast verð. Engin sætagjöld og ekkert gjald fyrir hvert leyst erindi. Með Kjarna fer Anna í loftið á vefnum þínum og svarar á íslensku og ensku, bókar tíma og lærir frá fyrsta degi.

  • Eitt fast verð
  • Engin sætagjöld
  • Ekkert gjald á erindi

Kjarni kostar minna á mánuði en einn vinnudagur starfsmanns.

Anna deilir öllu með þér.

Anna er eini „starfsmaðurinn“ þinn sem þú getur fylgst með í rauntíma, þjálfað með einni setningu og farið yfir svörin hennar án þess að kíkja yfir öxlina á neinum. Stjórnborðið er bæði á íslensku og ensku.

Öll samtöl á einum stað.

Öll samtöl Önnu við viðskiptavini eru leitanleg, flokkanleg og geymd á einum stað. Þú sérð nákvæmlega hvernig hún svarar.

Kenndu Önnu í daglegu máli.

„Þegar einhver spyr um bílastæði, segðu að tvö stæði séu laus fyrir aftan húsið.“ Anna tekur setninguna, skilur hana, geymir hana og notar hana næst. Þú getur líka sent henni skjöl, verðskrár og matseðla. En stundum er fljótlegast að segja henni bara hvað hún á að segja.

Hún segir þér hvenær hún veit ekki.

Sérhver spurning sem Anna treystir sér ekki til að svara er merkt fyrir þig. Þú svarar henni einu sinni og eftir það kann Anna svarið.

Skjölin þín. Vefurinn þinn. Hún les allt.

Sendu inn verðskrár, matseðla og reglur eða bentu henni á vefsíðuna þína. Hún les efnið, skilur það og notar.

Anna er liðsmaður. Þú ert þjálfarinn.

Þú getur alltaf komið inn á.

Þú sérð samtölin í rauntíma. Ef þú vilt taka við, smellirðu á samtalið, svarar viðskiptavininum beint úr stjórnborðinu og réttir Önnu boltann aftur að því loknu.

Ef enginn er við, verður samtalið sjálfkrafa að máli í stjórnborðinu þínu. Innifalið í öllum áskriftum.

A

Anna

Á vakt

Afmæliskvöldverður dóttur minnar í gær olli vonbrigðum. Ég vil frekar tala við ykkur en að skrifa slæma umsögn.
Takk fyrir að láta okkur vita. Svona afsökunarbeiðni á að koma frá manneskju, ekki frá mér. Ég sæki vaktstjórann.
Katla tók við spjallinuKKatla · vaktstjóri
Góðan dag, þetta er Katla. Ég var á vaktinni í gær og mér þykir þetta mjög leitt. Má ég hringja í þig og bæta ykkur þetta upp?
Skrifaðu skilaboð...

Frumkvöðlasamstarf

Vertu með frá byrjun.

Við erum ný og erum ekki komin með viðskiptavinasögur til að sýna enn. Varan er tilbúin og Anna er á vakt á okkar eigin vefjum: annasvarar.is, corveria.com og movingtoiceland.com. Nú leitum við að fyrirtækjum sem vilja taka á móti Önnu snemma, koma henni í raunveruleg verkefni og segja okkur hreinskilnislega hvað virkar og hvað þarf að bæta.

  • Fyrstu þrír mánuðirnir án endurgjalds. Full áskrift og engin skuldbinding um framhald.
  • Eftir það semjum við um ríflegan frumkvöðlaafslátt með hverju fyrirtæki, út frá umfangi og þörfum.
  • Við setjum Önnu upp í samstarfi við þig, tengjum kerfin þín og hjálpum ykkur af stað.
  • Þú nærð beint í teymið sem smíðar Önnu meðan á uppsetningu og innleiðingu stendur.

Í staðinn biðjum við um reglulega, hreinskilna endurgjöf á fyrstu mánuðunum. Þegar mælanleg reynsla er komin ræðum við hvort segja megi frá samstarfinu. Umsögn eða opinber birting er aldrei skilyrði.

Okkar eigin vefir

Viltu ræða þetta fyrst? Bóka símtal

Anna er smíðuð og rekin af Corveria ehf í Reykjavík og er á vakt á okkar eigin vefjum. Ef eitthvað er óljóst nærðu beint í okkur: [email protected].

Taktu á móti Önnu.

Hún les vefinn þinn og þú bætir við því sem upp á vantar. Þá er hún tilbúin í fyrstu vaktina. Anna virkjast um leið og þú stofnar aðgang. Engar kortaupplýsingar. Reikningur berst með 14 daga greiðslufresti.

Anna fer í loftið um leið og þú skráir þig. Engar kortaupplýsingar. Reikningur berst með 14 daga greiðslufresti.

Ekki tilbúin(n) strax?