Verslun og netverslun

Búðin lokar klukkan sex. Spurningarnar ekki.

Anna svarar spurningum um vörur, skil og afhendingu á réttri íslensku, beint úr þínum gögnum. Hún er á vakt þegar viðskiptavinirnir eru að versla, líka seint á kvöldin.

Anna fer í loftið um leið og þú skráir þig. Engar kortaupplýsingar, reikningur innan 14 daga.

  • Svör beint úr þínum gögnum.

    Þú setur inn vörulista, skilareglur og sendingarupplýsingar, eða bendir Önnu á vefinn þinn. Hún les, man og svarar rétt. Þegar eitthvað breytist uppfærirðu bara skjalið og hún er komin með nýju útgáfuna á nokkrum mínútum.

  • Skil og afhending afgreidd strax.

    Algengustu erindin í verslun snúast um skil, stöðu pöntunar og afhendingartíma. Anna afgreiðir þau um leið og þau berast, á íslensku sem viðskiptavinir treysta.

  • Passar við kerfin þín.

    Verslunarkerfi eins og Shopify tengjast þjónustunni, og Anna situr jafn vel á netverslun og á vef verslunar með afgreiðslutíma. Spurðu okkur um þitt kerfi.

  • Veit hvenær manneskja á að taka við.

    Kvartanir og sérmál fara til þín með samantekt á samtalinu, og þú getur tekið við hvaða samtali sem er í rauntíma úr stjórnborðinu.

Prófaðu spjallið í búðinni.

Prufuumhverfið er meðal annars prjónabúð. Spurðu um vöru, skil eða sendingu og sjáðu svörin sjálf.