Liðsfélaginn þinn

Hittu Önnu.

Hún hefur unnið hjá næstum hverju fyrirtæki á Íslandi, eða mun gera það fljótlega.

A
Anna
Þjónustufulltrúi · þitt vörumerki
Á vakt
Tungumál
Íslenska, enska og fleiri
Svartími
Nokkrar sekúndur
Vinnutími
Allan sólarhringinn
Bókanir
Beint í dagatalið
Lærir
Þitt fyrirtæki, dag frá degi

Alltaf á vakt. Alltaf í leiknum.

Nafnið

Allir þekkja Önnu.

Anna er eitt algengasta nafn í íslenskri sögu. Þú hefur næstum örugglega unnið með einni. Eða verið í skólabekk með þremur. Eða átt frænku sem heitir Anna. Nafnið er svo gegnumskotið hverju horni íslensks samfélags að það þarf ekki útskýringar. Þú þarft ekki að kynnast Önnu. Þú þekkir hana nú þegar.

Merkingin

Nafnið er sögn.

Í íslensku þýðir „að anna“ að ráða við, sjá um, taka að sér. „Anna annar þessu“ er setning sem skrifar sig sjálf. Þegar við bjuggum til liðsfélaga til að gera einmitt það, þurftum við ekki að leita langt að nafni. Nafnið vann vinnuna áður en hún mætti á völlinn.

annasögn/ˈanːa/

1.að ráða við; hafa undan.

2.að sjá um, taka að sér.

„Anna annar þessu.“

Alls staðar

Hún er alls staðar.

Anna þjónar hvaða atvinnugrein sem er. Hún er jafn tilbúin að bóka tíma á tannlæknastofu, svara spurningu um ullarpeysu, eða hjálpa ferðamanni að finna gistingu. Hún er ekki sérsniðin fyrir eitt svið. Hún er jafnvíg á þau öll.

  • A
    Hárgreiðslustofa
    Bókar tíma beint
  • A
    Veitingastaður
    Borð og matseðill
  • A
    Dekkjaverkstæði
    Verð og opnunartímar
  • A
    Prjónabúð
    Vörur og sendingar

Hvað kann Anna?

Íslenska sem viðskiptavinir treysta.

Anna er smíðuð frá grunni fyrir íslensku. Hún beygir rétt, notar eðlilegt orðalag og þekkir blæbrigðin sem erlendar gervigreindir missa oft af. Viðskiptavinir þínir finna strax muninn. Íslenskan hljómar eðlilega, ekki vélræn þýðing.

Alltaf í leiknum.

Anna tekur ekki frí. Hún er á vakt á aðfangadagskvöld, á laugardögum klukkan þrjú að nóttu, og á milli jóla og nýárs þegar allt annað er lokað. Fyrirspurn sem berst klukkan 23:47 verður að bókun klukkan 23:48. Þú missir ekki af viðskiptum vegna tíma dags.

Bókar tíma beint.

Anna tengist Google dagatalinu þínu og bókar tíma inni í samtalinu sjálfu. Engin bið eftir staðfestingu. Viðskiptavinurinn sér lausa tíma í beinni, velur einn, og fær staðfestingu í tölvupósti um leið.

Veit hvenær á að gefa.

Anna er liðsmaður, ekki einleikari. Þegar mál krefst mannlegrar ákvörðunar gefur hún boltann strax til rétts aðila hjá þér. Til dæmis kvörtun sem þarf einlæga afsökun, tæknileg spurning sem hún er ekki viss um, eða viðskiptavinur sem virðist pirraður. Þú færð tilkynningu með samantekt á samtalinu, svo þú veist hvað er að gerast áður en þú svarar.

Æfingin skapar meistarann.

Þú setur inn verðskrár, matseðla, spurningalista og reglur (PDF, Word-skjöl, vefslóðir, textasíður). Anna les þau, man þau, og notar í hverri einustu fyrirspurn. Þegar eitthvað breytist uppfærirðu bara skjalið og Anna er komin með nýju útgáfuna á nokkrum mínútum. Engin ný uppsetning.

Klæðist liðsbúningnum þínum.

Anna aðlagar liti, leturgerð og tón að vörumerkinu þínu. Hún getur verið formleg eins og lögfræðistofa, hlýleg eins og kaffihús, eða fagmannleg eins og tannlæknir. Sama Anna, mismunandi skrúði. Í Breidd og stærri áskriftum getur hún jafnvel fengið sérsniðið nafn og persónu: Hannes fyrir iðnaðarfyrirtæki eða Bríet fyrir hönnunarstofu.

Spilar eftir reglum.

Gögn viðskiptavina þinna eru geymd í gagnaverum innan ESB. Þau fara aldrei í þjálfun gervigreindarlíkana. Þau eru þín, punktur. GDPR-samræmi er innbyggt, ekki viðbót sem þú þarft að virkja. Í Sérlausn gerum við DPA samkomulag og sérskilmála ef þú þarft.

Hvernig talar Anna?

StéttarfélagLifandi mannleg yfirtaka
A

Anna

tengd

Ég fékk uppsagnarbréf og á að skila svari fyrir mánudag. Hef ég einhvern rétt?
Já. Þú átt almennt rétt á andmælum og oft uppsagnarfresti. En rétturinn fer eftir samningnum þínum og ástæðu uppsagnar, svo ég vil ekki giska.
Ég næ í lögfræðing úr teyminu sem getur farið yfir þetta með þér. Augnablik.
Katrín tók við spjallinuKKatrín · lögfræðingur
Sæl, þetta er Katrín. Ég las samtalið. Geturðu sent mér bréfið og samninginn? Þá segi ég þér nákvæmlega hvar þú stendur.
Skrifaðu skilaboð...
GistihúsVefleit með heimildum
A

Anna

tengd

Sjáum við norðurljós í kvöld eða er það borin von?
Ekki borin von. Spáin er ágæt: það á að rofa til upp úr tíu og virknin er í meðallagi. Ég myndi hafa myndavélina við höndina.
Heimild: vedur.is
Hvert er best að fara hér í kring?
Bara út fyrir ljósin frá bænum. Túnið fyrir aftan húsið snýr í norður og er nógu dimmt fyrir góða sýn.
Skrifaðu skilaboð...
HárgreiðslustofaBókun beint í spjalli

Sama Anna, ólík verkefni.