10. júlí 2026

Þegar ferðamaðurinn spyr klukkan fjögur að nóttu

Þórir Aron Stefánsson, stofnandi Önnu svarar

Gestur í Chicago skipuleggur Íslandsferðina sína yfir kvöldkaffinu. Klukkan hjá honum er hálf tíu að kvöldi. Á Íslandi er klukkan hálf þrjú að nóttu. Hann sendir sömu fyrirspurnina á þrjú fyrirtæki: „Er laust í hvalaskoðun á fimmtudaginn? Sækið þið á hótel?“

Eitt fyrirtækjanna svarar innan mínútu. Hin tvö svara morguninn eftir, kurteislega og vel. En þá er gesturinn sofnaður, búinn að bóka hjá því fyrsta.

Nóttin er háannatími fyrirspurna

Þetta er hrein landafræði. Kvöld í Norður-Ameríku er nótt á Íslandi, og ferðalög eru einmitt skipulögð á kvöldin, eftir vinnu, með fjölskylduna í kringum eldhúsborðið. Yfir sumarið margfaldast svo allt: fleiri gestir, fleiri spurningar, styttri fyrirvari.

Sjálfar spurningarnar eru sjaldnast flóknar. Laus pláss, verð, brottfarartími, hvort sótt sé á hótelið, hvað eigi að vera í töskunni, hvort ferðin henti tíu ára barni. Flestum þeirra má svara út frá upplýsingum sem fyrirtækið á nú þegar. Svörin eru til. Klukkan hálf þrjú að nóttu er bara enginn í vinnunni til að senda þau.

Hvað ósvöruð fyrirspurn kostar

Ferðamaður í bókunarhug er sjaldan að tala við eitt fyrirtæki. Hann er með nokkra glugga opna og ferðaáætlun sem þarf að ganga upp. Fyrsta nothæfa svarið vinnur oftar en ekki. Hin fyrirtækin voru kannski með betri ferð á betra verði; þau svöruðu bara ekki á meðan ákvörðunin var tekin.

Fyrirspurnin er líka fyrstu kynni gestsins af þjónustunni þinni, og hann dregur sínar ályktanir af því hvort svarið berst um leið eða eftir hádegi daginn eftir.

Ekkert fyrirtæki svarar öllu, alltaf, um leið. Markmiðið er raunsærra: að stytta bilið milli spurningar og svars þegar enginn er við.

Fjórir raunhæfir kostir

1. Betri upplýsingar á vefnum. Skýr verðskrá, sýnilegir brottfarartímar og vandaðar algengar spurningar leysa hluta vandans, ókeypis, og eru alltaf fyrsta skrefið. Takmörkin eru samt augljós: vefsíðan svarar ekki „er laust á fimmtudaginn?“ og gestir spyrja samt, líka um það sem stendur skýrum stöfum á síðunni.

2. Sjálfvirkt svar með skýrum væntingum. „Takk fyrir fyrirspurnina, við svörum fyrir hádegi“ heldur kurteisinni og kaupir tíma. En það svarar engu efnislega og stöðvar ekki leit gestsins annars staðar. Betra en þögn, ekki mikið meira.

3. Næturvakt eða útvistuð svörun. Mannlegt svar allan sólarhringinn er gulls ígildi, en það er dýrt og mannfrekt, og erfitt að manna einmitt þegar mest gengur á. Útvistun léttir álagið en sá sem svarar þekkir reksturinn sjaldnast nógu vel til að svara öðru en því almennasta.

4. Gervigreind sem svarar úr þinni eigin þekkingu. Nýjasti kosturinn og sá sem breytist hraðast. Vel upp sett gervigreind svarar um leið, á tungumáli gestsins, jafnt klukkan fjögur að nóttu sem fjögur að degi. En hún er bara jafn góð og þekkingin sem hún fær, og hún þarf að kunna að rétta fólki boltann þegar spurningin á heima hjá manneskju.

Fimm spurningar áður en þú velur gervigreind

Ef fjórði kosturinn kemur til greina er úrvalið orðið nokkurt og gæðamunurinn mikill. Þessar fimm spurningar hjálpa:

  1. Svarar hún eingöngu úr þinni þekkingu? Gervigreind sem giskar á verð og tímasetningar er verri en engin. Svörin eiga að koma úr þínum upplýsingum, og þegar þau finnast ekki þar á hún að segjast ekki vita svarið.
  2. Er íslenskan jafn góð og enskan? Og kostar annað þeirra aukalega? Hvorugt ætti að vera málamiðlun.
  3. Hvað gerist þegar hún getur ekki svarað? Rétta svarið er tilvísun: málið fer til teymisins með samantekt og gesturinn veit að manneskja tekur við. Þögn eða endalausir hringir eru röng svör.
  4. Sér hún raunverulegt framboð? Fyrir ferðaþjónustu er þetta lykilspurningin. Svar upp úr gömlu PDF-skjali um ferð sem er löngu uppseld gerir meira ógagn en gagn. Tenging við bókunarkerfið sjálft skiptir öllu.
  5. Lærir hún reksturinn þinn? Þú átt að geta leiðrétt svar einu sinni, samþykkt leiðréttinguna og treyst því að hún gildi eftir það.

Þess vegna heitir hún Anna svarar

Anna er okkar svar við þessu bili. Hún svarar á vefsíðunni þinni um leið, á íslensku og ensku jafnt, og gerir sitt besta á öðrum tungumálum. Svörin sækir hún í þína eigin þekkingu, les ferðirnar beint úr Bókun, raunverulegt framboð og verð, og sendir gestinum hlekk beint á bókunarsíðu ferðarinnar. Þegar málið á heima hjá fólki vísar hún því áfram með samantekt og lætur þig vita strax.

Háannatíminn er annasamur. Anna annar þessu.

Fyrirspurnin klukkan fjögur að nóttu fær þá svar klukkan fjögur að nóttu.

Skoðaðu hvað Anna gerir fyrir ferðaþjónustu eða spjallaðu við hana strax, án skráningar.

Allar greinar